AWA

Mamma þarf að djamma

0
0
  • 2018.11.30
  • 3:14
AWAで聴く

歌詞

Mamma er enn í eldhúsinu, uppgefin á þessu og hinu. Teygir sig í kampavínið, kælir það í drasl. Á klaka setur vandamálin, áhyggjur og basl. Spyrðir sig í sparigallann. Sparslar fésið, reyrir mallann. Mamma þyrfti að sofna, því mamma er svo þreytt. En mamma landar engum þorskum sofi hún út í eitt. Mamma ætlar að djamma. Fá sér nýjan vin. Mamma ætlar að djamma elsku kerlingin. Svo ljúfsárt getur lífið verið. Hún losar sig við krakkagerið. Rauðum vörum litar glasið, lakkar tásurnar. Lyftir barmi, þarf að toppa hinar pjásurnar. Af lymsku skal nú lagt á ráðin. Hvar leynist skársta næturbráð in? Stundum er hún heppin, en oftast fer allt í fokk. Þá fer hún heim með öskupöddufullan drullusokk. Mamma ætlar að djamma. Til í tuskið er. Mamma ætlar að djamma ein með sjálfri sér. Fengitíminn löngu liðinn lokametrinn skal þó skriðinn. Þó óbeislaðar gamlar merar ættu að brokka heim. það eru engir prinsar eftir til að brynna þeim. Mamma ætlar að djamma. Hún á engan mann. Mamma ætlar að djamma Það eina sem hún kann Mútta, mútta‘ ætlar að tjútta elsku kerlingin. Mútta, mútta‘ ætlar að tjútta og finna í þetta sinn nýjan pabba þinn.

このページをシェア

Jóhanna Guðrún/Baggalúturの人気曲

Jóhanna Guðrún/Baggalútur
の他の曲も聴いてみよう
AWAで他の曲を聴く
はじめての方限定
1か月無料トライアル実施中!
登録なしですぐに聴ける
アプリでもっと快適に音楽を楽しもう
ダウンロード
フル再生
時間制限なし