Hvít,hvít brjóstin og kirsuber köstuðu mér í hylinn Berjamór berja augum berja þig, aftur augum. Draumur minn í efstu hillu. Tómatlituð tunga lipur, læðir orðum læðist inn í mig. Þögnum þakin heyrum eyrun. Heyra fátt, heyra lítið, ekki neitt. Og kossar þínir innsigluðu orðin. Viðlag: Kríthvít brjóst þín, kirsuberin. Eplagrænir augasteinar. Fjólubláar flauels-kinnar, blásvart hár þitt breiðir yfir; barnæskuna mína. Gulur hnöttur á himni blindar keyrir allt á kaf í birtu. Allir fuglar þurfa að fljúga. Líka þú, ég læt það ekki, á mig fá. Viðlag...