AWA

Syndir feðranna

0
0
  • 2000.01.01
  • 6:48
AWAで聴く

歌詞

Er síminn hringdi þá svaf borgin. Ég sat sem lamaður við þá frétt. Ég fylltist reiði - síðan kom sorgin Sumar fréttir hljóma aldrei rétt. Ég var orðinn edrú þegar hann fæddist Aldrei gleymi ég þeirri stund. Sú tíð var liðin er ég drukkinn læddist Um húsið heima með svarta lund. Og núna sit ég hér Á að svara þér Sit við þetta borð Og þú segir mér Að sonur minn Sé ákærður fyrir morð. Faðir minn heitinn var harður maður Með hjartað vel falið og ráma rödd. Okkar heimili varð hans drykkjustaður Við forðuðumst að verða á vegi hans stödd. Þannig liðu árin uns ég fór að heiman Úti var veröldin svo risastór. En ættardrauginn ég dæmdist að teyma Drykkjan fylgdi mér hvert sem ég fór. Ég og mín kona ólum upp þrjú börnin Eftir bestu getu og tíminn leið. Stundum var vöndurinn eina vörnin Ef villtust börnin af réttri leið. Hann hef ég elskað frá fyrstu stundu Frá fyrstu mínútu í lífi hans. En syndir feðranna drenginn minn fundu Og færðu honum að gjöf ólukkukrans. Sonur minn er ekki illur maður Engin sál veit sinn lífs veg. Sem lítill drengur var hann góður - glaður Nú græt ég hans örlög - hryggileg.

このページをシェア

Bubbi Morthensの人気曲

Bubbi Morthensのアルバム

Bubbi Morthens
の他の曲も聴いてみよう
AWAで他の曲を聴く
はじめての方限定
1か月無料トライアル実施中!
登録なしですぐに聴ける
アプリでもっと快適に音楽を楽しもう
ダウンロード
フル再生
時間制限なし