AWA

Með jötnum (Live In Reykjavík)

Track bySkalmöld

0
0
  • 2020.10.23
  • 10:10
AWAで聴く

歌詞

Æsist jötunn, eðlishvöt oss frá glötun bjargar. Rífur göt á feld og föt, flensar kjöt og sargar. Skriðjöklar gnauða og skrafa í myrkrinu, skjálfti um höfðana fer. Koma þau skríðandi úr kafi, kafloðin skrímslin úr hafi. Bryðjandi grjótið og bergið og þúfurnar, brestur í öllu sem er. Stætt er þá engum á ströndum. Storknað er blóðið á höndum. Ver oss vökull Vatnajökull. Dansar dátt mey. Dyrhólaey. Vaknar í látunum vinur úr dvala og veður í óvinaskaut. Hann er með konu á herðum, hér vinnur bóginn á sverðum. Stafnum í jörðina stingur hann hamrammur, stökkva þá dýrin á braut. Brotnaði risinn úr bergi, berserkur hvikar nú hvergi. Skelfur jörð. Skelfur þar jörðin er skellur skaftið á hraunlagðar hellur. Stendur vörð. Stendur hann vörð þegar steðjar að hætta. Hann stendur með okkur og fellur. Falla lauf. Falla þá laufin að foldu. Frjósa lík saman við moldu. Birtan dauf. Birtan er dauf þegar bardaga lýkur. Þar bíða þau tvö sem að þoldu. Brotnar sjór. Brotnar þá sjórinn á bergi, bátarnir þoldu víst hvergi. Hverfur mór. Hverfur af mórinn en hvitslegin björgin víst hvíla á eldgömlum mergi. Kólnar blær. Kólnar svo blærinn og kreppir. Kverkunum risinn ei sleppir. Losna klær. Losnar um klær þegar lífið út fjarar og Loki þá óvininn hreppir. Halda bönd. Halda þau bönd er við hnýttum, heiðrum þær stundir er nýttum. Jötnahönd. Jötna- með hönd var þar járnstafur reistur, í jarðvegi lenti hann grýtt um. Sofna börn. Sofna loks börnin er sekkur sólin við fjarlægar brekkur. Bæjartjörn. Bæjarins tjörn tekur blásvartan skugga er bergrisinn úr henni drekkur. Jötnahönd, járn- með vönd. Jökull skelfur, freyðir strönd. Jafnan halda engin bönd. Jötnahönd, jötnahönd. Jötnahönd, járn- með vönd. Jörðin opnast, sökkva lönd. Jakar íss við sjónarrönd. Jötnahönd, jötnahönd.

このページをシェア

Skalmöldの人気曲

Skalmöldのアルバム

9曲2023年
3曲2023年
9曲2018年
11曲2012年
12曲2010年
12曲2010年
Skalmöld
の他の曲も聴いてみよう
AWAで他の曲を聴く
はじめての方限定
1か月無料トライアル実施中!
登録なしですぐに聴ける
アプリでもっと快適に音楽を楽しもう
ダウンロード
フル再生
時間制限なし