AWA

Narfi (Live In Reykjavík)

Track bySkalmöld

0
0
  • 2020.10.23
  • 5:10
AWAで聴く

歌詞

Narfi ég hitti er nóttin var liðin, Niflheimahliðin. Kom hann í hnakki á kolsvörtum fola, kólnaði gola. Starði á okkur með stingandi augum, staðurinn umkringdur vofum og draugum. Þrek hans var búið og hugrekkið brostið, beit okkur frostið. Loki vill buga legg þinn og hug, lítið því duga vopn og vörn. Hlusti nú hver sem heyrir í mér: Hættuleg eru Loka börn. Hann þekkir staðinn sem hrímar og frystir, Hel er hans systir. Sagði að núna hann vildi mig vara við því að fara niður til hennar sem Niflheimi stjórnar, neyðir og pyntar og sveltir og fórnar. Bráðum ég myndi svo bágindum mæta, Brynhildi græta. Lævís og slyng þau læðast í hring, lokka þig kringum Bæjartjörn. Hlusti nú hver sem heyrir í mér: Hættuleg eru Loka börn. Vilja úr leyni vinna þér mein, villidýr reynast hefnigjörn. Hlusti nú hver sem heyrir í mér: Hættuleg eru Loka börn. Þig vilja hryggja, þau eru stygg. þagna mun Frigg og fölna Hörn. Hlusti nú hver sem heyrir í mér: HÆttuleg eru Loka börn. Loki vill buga legg þinn og hug, lítið duga því vopn og vörn. Hlusti nú hver sem heyrir í mér: Hættuleg eru Loka börn.

このページをシェア

Skalmöldの人気曲

Skalmöldのアルバム

9曲2023年
3曲2023年
9曲2018年
11曲2012年
12曲2010年
12曲2010年
Skalmöld
の他の曲も聴いてみよう
AWAで他の曲を聴く
はじめての方限定
1か月無料トライアル実施中!
登録なしですぐに聴ける
アプリでもっと快適に音楽を楽しもう
ダウンロード
フル再生
時間制限なし