AWA

Niflheimur

Track bySkalmöld

0
0
  • 2016.09.30
  • 5:03
AWAで聴く

歌詞

- hér sefur ís Sem vetur konungur í klakahelli, út liðast Niðhöggur á Nábítsvelli. Hrímþursar fylgja með á svörtu svelli. Blikandi norðurljós á Niflheimsþaki, þrúgandi þögnin heldur traustataki. Já, hér er ekkert nema kyrrð og klaki. Þennan stað hýsir þjáningin, þursarnir vísast kaldir. Heimurinn frýs við himininn, hér sefur ís um aldir. Þursarnir væla meðan vindar gnauða og rokið skilur eftir skika auða. Ísinn er sprunginn og hann spúir dauða. Sofðu. Sofðu. Í lofti þokkafullar þokuslæður. Hér er þad ísinn sem að ríkjum ræður. Hér deyja mennirnir og Múspellsbræður. Sofðu. Sofðu. Nýr dagur rís. Hér sefur ís. Niflheimahliðin, þar fordæmdur fer. Dagur er risinn en dimmt hvar sem er. Dóttir mín litla, hvað gerði ég þér? Þá gýs úr Hvergelmi með ógn og ótta og þar með leggja allir lífs á flótta. Það birtir ekki Nifls - á milli nótta. Sofðu. Sofðu. Þar svífur vætturin á vængjum þöndum. Við erum fönguð þar sem fátæk stöndum og bundin kyrfilega klakaböndum. Sofðu. Sofðu. Nýr dagur rís. Hér sefur ís. Léttir það varð þegar dóttir mín dó, sofðu sem fastast og finndu þér ró, faðmur minn verndar frá kulda og snjó.

このページをシェア

Skalmöldの人気曲

Skalmöldのアルバム

9曲2023年
3曲2023年
9曲2018年
11曲2012年
12曲2010年
12曲2010年
Skalmöld
の他の曲も聴いてみよう
AWAで他の曲を聴く
はじめての方限定
1か月無料トライアル実施中!
登録なしですぐに聴ける
アプリでもっと快適に音楽を楽しもう
ダウンロード
フル再生
時間制限なし