AWA

Upprisa (Live)

Track bySkalmöld

0
0
  • 2016.09.30
  • 7:14
AWAで聴く

歌詞

Risin upp af jörðu, reikul eru spor, röddin brostin, andinn sár og lamað er mitt þor. Geng ég upp að Vörðu, gái yfir brún, garður hruninn, bæjarrúst og sviðin öll mín tún. Óðinn! Heimdallur! Himnahallir! Baldur! Forseti! Æsir allir! Aumkið ykkur yfir mig, blásið mér í brjóst baráttu- og hefndarmóð, núna er mér ljóst, Að það er verk sem út af stendur, ég verð að sinna því, valinn þekkja fallnir, svartan himin kólguský. Stillið mínar hendur, styrkið þreyttan fót, styðjið við mig, bræður, sækið axir, sverð og spjót. Nár við fætur liggur, nídd er sérhver taug, núna söfnum líkunum og leggjum þau í haug. Hugurinn er styggur, hefndarþorstinn sár, heiðin geymir friðþægingu upp við Jökulsár. Upprisinn á ögurstund, örlög skapa hetjulund. Loksins núna léttast spor, lyftist brún og eflist þor. Birginn þannig býður þeim bitvargi úr Heljarheim. Heldur hann í veika von, vígamaður Óðinsson. Rís hann upp og sjá - Ég er afli gæddur! Ríður burtu Gná - Þessi ógnarkraftur! Berserkur upp rís - Ég er Baldur fæddur! Bliknar heilladís - Ég kem aldrei aftur! Ríðum móti hættum, ríðum yfir heiði. Ríðum móti vættum, leggjum bú í eyði. Upp er risinn Baldur Óðinsson! Hefnum fyrir vígin, hættur okkur lokka. Heiman fetum stíginn, seint mun klárinn brokka. Upp er risinn Baldur Óðinsson

このページをシェア

Skalmöldの人気曲

Skalmöldのアルバム

9曲2023年
3曲2023年
9曲2018年
11曲2012年
12曲2010年
12曲2010年
Skalmöld
の他の曲も聴いてみよう
AWAで他の曲を聴く
はじめての方限定
1か月無料トライアル実施中!
登録なしですぐに聴ける
アプリでもっと快適に音楽を楽しもう
ダウンロード
フル再生
時間制限なし