AWA

Múspell

Track bySkalmöld

0
0
  • 2016.09.30
  • 5:20
AWAで聴く

歌詞

- hér sefur eldur Kvika streymir og kraftar losna, klettar brenna. Barnið dreymir en taugar trosna, tárin renna. Bráðna steinar og bergið flýtur, brostnir draumar. Ljósið veinar og loginn hvítur, landið kraumar. Bálið sem veldur bardögum bjarma á kveldið kastar. Surtur fer heldur hamförum, hér sefur eldur fastar. Jötnar æða um jörd í molum. Jöklar gráta. Ísinn bræða á æstum kolum. Æpir hnáta. Móðir huggar þar mædda dóttur. Múspell fagnar. Dansa skuggar er dofnar þróttur. Dagur þagnar. Þú deyrð í nótt! Himinninn er hulinn sóti, hraunið rennur okkur móti. Svartnætti til allra átta, illt er myrkur Múspellsnátta. Finnum hvernig fætur svíða, feigir eftir okkur biða. Saman munum lífið láta, lítil rödd er hætt að gráta. Ryðst úr sprungum, gjám og gjótum gríðarbál í risafljótum. Loki gefur lausan tauminn, leikur sér við stríðan strauminn. Liggjum við á litlu skeri, lyftist glóðin nær. Sárt að hérna beinin beri barnung dóttir kær. Loks ég finn að lítill skrokkur lætur eftir sitt. Hraunið breiðir yfir okkur, elsku barnið mitt.

このページをシェア

Skalmöldの人気曲

Skalmöldのアルバム

9曲2023年
3曲2023年
9曲2018年
11曲2012年
12曲2010年
12曲2010年
Skalmöld
の他の曲も聴いてみよう
AWAで他の曲を聴く
はじめての方限定
1か月無料トライアル実施中!
登録なしですぐに聴ける
アプリでもっと快適に音楽を楽しもう
ダウンロード
フル再生
時間制限なし