AWA

Útgarður

Track bySkalmöld

0
0
  • 2016.09.30
  • 4:29
AWAで聴く

歌詞

- hér sofa jötnar Ró yfir röstum. Ró yfir þröstum. Ró yfir höllum. Ró yfir gjöllum. Ró yfir töngum. Ró yfir dröngum. Ró yfir hjöllum. Ró yfir stöllum. Vöknum seint og sjáum sól á himni bláum. Ef að líkum lætur leggjum við upp í ferðalag. Föngum ferðalanga, fyllum maga svanga, leggjumst sæl og síðan sofum við fram á næsta dag. Ró yfir jötnum. Ró yfir vötnum. Ró yfir fjöllum. Ró yfir völlum. Ró yfir stjörnum. Ró yfir börnum. Ró yfir tröllum. Ró yfir öllum. Förum seint að sofa sátt í okkar kofa. Þó að veður versni vöknum alls ekki fyrir því. Þar í hrúgu hrjóta hávær börn til fóta, þau skal ekkert angra, æsir, menn eða skúraský. Veggir Útgarðs verja, vopnin okkar merja bæði hjálm og höfuð herfylkinga í vígahug. Það er gott og gaman grey að drepa saman. Þegar birtu bregður bjargast þeir sem að sýna dug. Útgarða - brött er Loka leið, liggur um vötn og sveitir, hefur þar kött og Hugaskeið, hér sofa jötnar feitir. Látum kylfur kremja, kinnbein sundur lemja. Drekkum mjöd og mungát, meðan höfum við nokkurn þrótt. Síðan brjótum beinin, berjum þeim við steininn. Svo við dans og drykkju dugum við fram á rauðanótt. Vöknum seint og sjáum sól á himni bláum. Ef að líkum lætur leggjum við upp í ferðalag. Föngum ferðalanga, fyllum maga svanga, leggjumst sæl og síðan sofum við fram á næsta dag.

このページをシェア

Skalmöldの人気曲

Skalmöldのアルバム

9曲2023年
3曲2023年
9曲2018年
11曲2012年
12曲2010年
12曲2010年
Skalmöld
の他の曲も聴いてみよう
AWAで他の曲を聴く
はじめての方限定
1か月無料トライアル実施中!
登録なしですぐに聴ける
アプリでもっと快適に音楽を楽しもう
ダウンロード
フル再生
時間制限なし